Þóra Hlín

Þóra Hlín er stofnandi Kundalini Activation. Hún hefur haldið reglulega viðburði á Íslandi síðastliðinn fjögur ár við góðar undirtektir. Það er henni mikill heiður að sjá þetta starf vaxa og blómstra hér á Íslandi, ótalmörgum einstaklingum til góðs og til bættrar líðan. 

Hún hóf jógaiðkun sína fyrir rúmlega 20 árum og hefur jóga verið stór hluti af lífinu hennar. 

Eftir útskrift frá hjúkrunarfræðideild HÍ árið 2010 hóf hún kennaranám í kundalini-jóga hjá Guðrúnu Arnaldsdóttur og útskrifaðist árið 2011 með alþjóðleg Yoga Alliance-kennsluréttindi frá Kundalini Research Institute. Í framhaldi af þessu kviknaði löngun til að ferðast til Indlands og dýpka þekkingu sína á jógafræðum og hugleiðslu samkvæmt Ashtanga-hefðinni og dvaldi hún í borginni Mysore á Suður-Indlandi við nám og útskrifaðist í maí 2012 sem Ashtanga-kennari.  Hún hefur auk þess sótt þekkingu og menntun víða um heim.  

Hún upplifði í fyrsta sinn Kundalini orkuna innra með sér í upphafi árs 2018 þegar hún var á ferðalagi í Thailandi og í framhaldiny hóf hún einkanám og þjálfun hjá lærimeistara mínum, Venant Wong.